Samstarfsaðilar

Eftir að Jón B. Stefánsson skólameistari Tækniskólans hafði boðið alla nýja nemendur velkomna voru nemendur Margmiðlunarskólans boðnir út í sólina þar sem kennararnir kynntu skólann og ræddu hvað framundan væri. Eftir spjall um skólaverkefnin og námið voru húsakynni skólans kynnt fyrir nemendunum ásamt því að nemendur kynntust örlítið. Það er óhætt að segja að allir eru mjög spenntir yfir nýju húsnæði og nýju skólaári.


