Samstarfsaðilar
The Area
Margmiðlunarskólinn vill óska Caoz hjartanlega til hamingju með stórmyndina Þór sem er frábær í alla staði. Kreditlistinn var einnig skemmtilegur vegna þess hversu margir sem á honum eru koma úr skólanum. Þetta er enn ein staðfestingin á því nemendur skólans eiga greiða leið á vinnumarkaðinn. Margmiðlunarskólinn kom einnig að endanlegri tölvuvinnslu á myndinni þar sem skólinn hefur yfir að ráða mörgum samtengdum tölvum sem hægt er að nýta í svokallaða “netrenderingu”.
Aftur viljum við óska Caoz til hamingju með myndina og jafnframt hvetja alla að fara og sjá þessa stórskemmtilegu mynd.


