Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriðin í Mudbox áferðarforritinu. Byrjað verður á að fara yfir helstu hluta og viðmót forritsins, svo móta þáttakendur og mála módel. Lögð verður áhersla á að þáttakendur geti nýtt sér forritið í vinnslu með öðrum þrívíddarforritum eins og 3ds Max, Maya og Blender. Kunnátta á þrívíddarforrit er kostur en ekki nauðsynleg.
Nemendur þurfa að búa yfir almennri tölvuþekkingu.
Nemendur fá viðurkenningaskjal frá Autodesk fyrir þáttökuna.
Kennari: Bernharð Aðalsteinsson kennari í Margmiðlunarskólanum.
Tími: 1, 3, 8 og 10 maí, frá kl. 18:00 - 22:00, alls 24 kst. eða 16 klst.
Námskeiðsgjald: 35.200 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Námsefni: Rafrænt efni frá kennara.
Staðsetning: Margmiðlunarskólinn við Háteigsveg (áður Sjómannaskólinn).



