Samstarfsaðilar
The Area
Margmiðlunarskólinn á í mjög nánu samstarfi við nokkur helstu fyrirtæki í þessum bransa á landinu auk þess að vera í tengslum við nokkra erlenda háskóla. Þetta samstarf felst í því að við höfum auðveldan aðgang að fremsta fagfólki á landinu og oft í heimi á sínum sviðum. Þessi fyrirtæki taka því bæði virkan þátt í því að kenna með okkur, þróa námið eftir óskum atvinnulífsins og einnig bjóða þau okkur reglulega í heimsóknir til þess að sýna nemendum hvað er nýjast að gerast í þessum ört vaxandi atvinnugeira. Fyrirtækin auðvitað snúa sér í auknum mæli beint til okkar þegar fjölga þarf í starfsliði þeirra.


