Samstarfsaðilar
The Area
Í haust flytur Margmiðlunarskólinn í nýtt og glæsilegt húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg. Þar verður frábær aðstaða sem hæfir framsæknum skóla, meðal annars green screen, MoCap, hljóðver og góð aðstaða fyrir nemendur í skapandi starfi.
Margmiðlunarskólinn er í fararbroddi kennslu í margmiðlun, margmiðlunarhönnun, hreyfimyndagerð og vefforritun. Mikil áhersla er á skapandi vinnu, tölvuleiki og tæknibrellur fyrir kvikmyndir og náminu lýkur með krefjandi lokaverkefni og sýningu.
Skólinn vinnur náið með helstu fyrirtækjum í þessum greinum svo sem CCP, Framestore og Caoz.
Við bjóðum nýja nemendur velkomna til leiks með frábærum hópi kennara og nemenda.
Innritun stendur yfir á www.menntagatt.is til 20. maí.


