Við fengum góða gesti í vikunni þegar fulltrúar frá færeyskum systurstofnunum okkar Nám, Próvstovan og Undirvísningarstýrið heimsóttu stofnunina.
Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi Menntamálastofnunar og segja frá menntakerfi og námsmati í Færeyjum. Þá var ræddur möguleiki á samstarfi stofnananna.