1. Forsíða
  2. Innritun nýnema í framhaldsskóla fyrir haustönn 2018

Innritun nýnema í framhaldsskóla fyrir haustönn 2018

Innritun nýnema í framhaldsskóla fyrir haustönn 2018

Alls sóttu 3.930 nemendur um skólavist að þessu sinni sem er 95,6% allra þeirra sem útskrifuðust úr grunnskóla nú í vor. Líkt og undanfarin ár gafst nemendum kostur á að sækja um tvo skóla. Eins og fram kemur á meðfylgjandi mynd fengu 89% umsækjenda skólavist í þeim skóla sem þeir völdu sér í fyrsta vali en til samanburðar má geta þess að á síðasta ári var hlutfall þessara nemenda 88%. Alls fengu 9% nemenda skólavist í þeim skóla sem þeir völdu sér í öðru vali en á haustönn 2017 var hlutfall þessara nemenda 10%.

Alls 65 nemendur eða um 2% allra umsækjenda fengu ekki skólavist í þeim skólum sem þeir höfðu óskað eftir og sá Menntamálastofnun um að útvega þeim skólavist í þriðja skóla. Flestir þeir sem tilheyrðu þessum hópi uppfylltu ekki inntökuskilyrði í það nám sem þeir sóttu um. Til samanburðar má geta þess að á síðasta ári var fjöldi þessara nemenda 81.

Undanfarin ár hafa nokkrir skólar notið mikilla vinsælda hjá umsækjendum og var engin breyting á því í þessari innritun. Samkeppnin um pláss var því hörð og þurftu skólar sem fengu hvað flestar umsóknir að vísa mörgum umsækjendum sínum frá. Í ár fengu Verslunarskóli Íslands, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Menntaskólinn við Sund flestar umsóknir

Nemendur geta nú farið inn á www.menntagatt.is  til að sjá úrvinnslu sinna umsókna.

Námsval nýnema

Gerð hefur verið gróf flokkun á námsvali 10. bekkinga þ.e. inn á hvaða námsbrautir nemendur innrituðust. Flestir nemendur sóttust eftir því að komast inn á bóknáms- eða listnámsbrautir til stúdentsprófs eða 69% allra þeirra sem sóttu um. Um 16% nemenda innrituðust á verk- eða starfsnámsbrautir en til samanburðar má geta þess að á haustönn 2017 var hlutfall þeirra sem innrituðust í verk- eða starfsnám 12%.

Um 15% nemenda innrituðust á almenna námsbraut eða framhaldsskólabraut en þessar námsbrautir eru einkum ætlaðar þeim sem ekki uppfylla inntökuskilyrði til að komast beint inn á aðrar brautir.

Af þeim sem sóttu um á verk- eða starfsnámsbrautum innrituðust 163 inn á námsbrautir sem tengjast rafiðngreinum, 121 nemandi á námsbrautir tengdum málmiðngreinum og 91 nemandi innritaðist á námsbrautir tengdum byggingagreinum.

skrifað 15. JúN. 2018.