1. Forsíða
  2. Læsisráðstefna

Læsisráðstefna

Laugardaginn 15. september 2018 verður efnt til læsisráðstefnu á Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Menntamálastofnunar. Á ráðstefnunni verður fjallað um tengsl læsis og sköpunar með sérstakri áherslu á ritun, tjáningu og stafræna miðlun.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar:

  • Jackie Marsh, prófessor við Sheffield háskóla á Bretlandi (stafrænt læsi)
  • Rannveig Oddsdóttir, sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar HA (ritun)
  • Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson, dagskrárgerðarfólk RÚV (sögugerð)

Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og sérstaklega horft til þess að viðfangsefni hafi hagnýtt gildi fyrir kennara. Auk aðalfyrirlestra verða bæði málstofuerindi og vinnustofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að læsi í skapandi skólastarfi. Málstofuerindi verða 30 mínútur og þar gefst tækifæri til þess að segja frá rannsóknarniðurstöðum eða áhugaverðum verkefnum í skólum. Vinnustofur verða 60 mínútur og þar er gert ráð fyrir kynningu á aðferðum og verkfærum og að ráðstefnugestir fái tækifæri til að prófa.

Hér með auglýsum við eftir erindum á málstofur og efni fyrir vinnustofur frá leik-, grunn-, framhalds- og háskólakennurum, náms- og kennsluráðgjöfum, skólastjórnendum og öðrum áhugasömum aðilum um efni ráðstefnunnar.

Einkum er leitað eftir:

  • kynningu á árangursríkum þróunarverkefnum
  • kynningu á nýlegum íslenskum og erlendum rannsóknum
  • kynning á árangursríkum leiðum, aðferðum og verkfærum
  • umfjöllun um strauma og stefnur

Frestur til að senda inn lýsingu á erindi eða vinnustofu að hámarki 300 orð er til 15. júní 2018.

Senda inn ágrip

Svör um samþykki frá ráðstefnuteymi munu berast 22. júní.

Nánari upplýsingar veitir Laufey Petrea Magnúsdóttir, 460 8590, netfang: [email protected]

Einnig eru upplýsingar á heimasíðum Menntamálastofnunar og Miðstöðvar skólaþróunar HA

 

skrifað 20. JúN. 2018.