1. Forsíða
  2. Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um eintak af Ritunarbókinni

Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um eintak af Ritunarbókinni

Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um eintak af Ritunarbókinni en samningar vegna hennar renna út í október. Hún verður því ekki prentuð aftur en kemur mögulega út sem rafbók síðar. 

Það er Lasse Ekholm sem er höfundur bókarinnar en hann hefur skrifað margar barna- og unglingabækur. Bækur hans eru skemmtilegar, spennandi, áhrifamiklar og fullar af gleði. Hann veit hvað grípur lesandann og getur útskýrt hvers vegna. Í þessari bók miðlar Lasse okkur af þeim stílbrögðum sem hann notar sem rithöfundur og einnig af reynslu sinni frá námsskeiðum í skólum og á Netinu.

Fátt er mikilvægara nú á tímum en hæfnin til að geta tjáð sig bæði munnlega og skriflega. Öll höfum við frá einhverju að segja. Listin er að gera það þannig að aðrir hlusti og lesi af áhuga. Ritunarbókin er full af dæmum um hvernig þú getur fundi athyglisverðan efnivið í frásögn þína, skrifað svo að textinn grípi lesandann, tillögur um hvernig þú byggir upp langar frásagnir og skemmtilega ritunarleiki.

skrifað 24. SEP. 2018.