1. Forsíða
  2. Verkefni í anda PISA-könnunarinnar

Verkefni í anda PISA-könnunarinnar

Nú þegar líður að PISA-könnuninni er ekki úr vegi að benda á Skilningsbókina sem er verkefnabók til útprentunar.

Í henni eru verkefni sem þjálfa skilning í lestri, stærðfræði og náttúrufræði en við gerð hennar var tekið mið af PISA-könnunum. Nemendur eru þjálfaðir í að leysa verkefni í þeim anda. 

  • Markmiðið er að gera þá hæfari til að leysa fjölbreytt verkefni úr daglegu lífi. 
  • Enn fremur eru í bókinni verkefni í fjármálalæsi sem miða að því að þjálfa skilning á ýmiss konar tilboðum þannig að nemendur sjái hvað er hagkvæmast í raun.
  • Upplýsingalæsi er mjög mikilvægt nútímamanninum til að vinna úr þeim upplýsingum sem berast í daglegu lífi. Það er ekki nóg að geta skilið lesinn texta því upplýsingar birtast einnig í töflum, kortum, línuritum, teikningum og annarri grafík sem fólk þarf að geta ráðið fram úr til að nýta sér þær.
  • Með þessu námsefni má auka lesskilning nemenda með lestri á tiltölulega stuttum textum og textarýni. Í kjölfarið fylgja markvissar spurningar og verkefni sem þjálfa nemendur í að ráða í merkingu orða út frá samhengi í texta og kryfja meginefni hans til mergjar.

 

skrifað 16. FEB. 2018.