1. Forsíða
  2. Vísnakeppni lýkur brátt

Vísnakeppni lýkur brátt

Lokadagur til að senda inn vísubotn í vísnakeppni Menntamálastofnunar og KrakkaRÚV er 9. desember. 

Í keppninni spreyta nemendur sig á því að botna fyrriparta sem að þessu sinni eru eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Úrslitin verða kunngjörð í byrjun nýs árs og verður þá vakin athygli á vinningsvísum og höfundum þeirra.

Hér fyrir neðan má smella á verkefni fyrir hvert stig. Nemendur á mið- og unglingastigi þurfa að huga vel að ljóðstöfum og rími en ætlast er til að nemendur á yngsta stigi einbeiti sér fyrst og fremst að ríminu. Ragnar Ingi Aðalsteinsson hefur tekið saman stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara og einnig bendum við á bók hans Bragfræði fyrir unglingastig grunnskóla.

Yngsta stig 

Miðstig 

Unglingastig 

Örstuttar bragfræðileiðbeiningar fyrir kennara

Vinsamlega athugið að vista skjölin á tölvu áður en ritað er í þau.

Skilafrestur er 9. desember 2016.
Hægt er að senda vísurnar rafrænt á netfangið 
[email protected] eða með bréfpósti:

Menntamálastofnun
Vísubotn 2016
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi

Einnig er hægt að taka þátt á síðu KrakkaRÚV

Á safnvef Menntamálastofnunar, Dagur íslenskrar tungu, er fjöldi áhugaverðra verkefna sem nota má í tilefni dagsins. Þar má einnig nálgast efni vísnasamkeppninnar síðustu ára undir hnappinum Vísur og limrur. Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis er fjölbreyttur hugmyndabanki sem kennarar geta nýtt sér og upplýsingar um dagskrá og viðburði víða um land. Þá er einnig vert að benda á fésbókarsíðu dags íslenskrar tungu en þar er fjallað um viðburði og annað er deginum viðkemur. 

skrifað 07. DES. 2016.