1. Forsíða
  2. Ytra mat á leikskólum

Ytra mat á leikskólum

Menntamálastofnun mun láta gera ytra mat á sex leikskólum árið 2018, sbr. lög nr. 90/2008 um leikskóla, gildandi reglugerðir um mat og eftirlit og þriggja ára áætlanir mennta- og menningarmálaráðuneytisins um úttektir á þessu skólastigi. 

Hér með er auglýst eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á því að fram fari ytra mat á starfi leikskóla innan þeirra, bæði þeirra sem reknir eru af sveitarfélaginu og öðrum aðilum. 

Í matinu felst að utanaðkomandi aðili leggur mat á starfsemi viðkomandi skóla með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá.  Verður það gert m.a. með því að skoða fyrirliggjandi gögn um starfsemi skóla, vettvangsathugunum, heimsóknum úttektaraðila og viðtölum við nemendur, starfsfólk skóla, foreldra og fulltrúa sveitarstjórnar.  Kostnaður vegna matsins greiðist úr ríkissjóði.

Vakin er athygli á að endurnýja þarf fyrri umsóknir.

Umsóknir skulu berast Menntamálastofnun frá sveitarstjórnum fyrir 10. nóvember 2017. Umsókn skal fylla út rafrænt.

Umsókn um ytra mat á leikskóla

Nánari upplýsingar gefur Björk Ólafsdóttir [email protected] hjá matssviði Menntamálastofnunar.

skrifað 10. OKT. 2017.