1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Allt getur gerst – Vinnubók

Allt getur gerst – Vinnubók

  • Höfundur
  • Bergur Tómasson
  • Myndefni
  • Þórarinn leifsson
  • Vörunúmer
  • 6143
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2007
  • Lengd
  • 24 bls.

Þessi vinnubók fylgir samnefndri lestrarbók úr flokknum Auðlesin sögubók sem er ætluð nemendum á mið og unglingastigi grunnskóla.

 Verkefnin henta vel þeim sem eru með annað móðurmál en íslensku eða þurfa að styrkja málvitund sína af öðrum ástæðum. Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í að tengja saman lestur sögubókar og verkefni í vinnubók. Í vinnubókinni er athygli nemenda beint að lesskilningi, orðaforða og málfræði, þ.e að nemendur átti sig á hvaða beygingarmynd tiltekinna orða á við í setningu.

Æskilegt er að nemendur hafi kynnst heiti orðflokka en það er ekki nauðsynlegt þar sem dæmi um lausnir er ávallt sýnt. Eftirfarandi málfræðihugtök koma fram í bókinni: nafnorð, lýsingarorð,stigbreyting, sagnorð, nútíð, þátíð, kyn, fornöfn, forsetningar, sérnöfn, samheiti, andheiti, eintala, fleirtala og greinarmerki.


Tengdar vörur