1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Verkefni í hönnun og smíði fyrir 1.–4. bekk - Rafbók

Verkefni í hönnun og smíði fyrir 1.–4. bekk - Rafbók

Opna vöru
  • Höfundur
  • Eygló Ragnheiður Sigurðardóttir
  • Myndefni
  • Eygló Ragnheiður Sigurðardóttir
  • Vörunúmer
  • 40595
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2014
  • Lengd
  • 43 bls.

Í þessum verkefnabanka eru 40 verkefni í hönnun og smíði fyrir nemendur í  1.– 4. bekk. Verkefnin eru miserfið og þyngdarstigið er táknað með tölustöfum  frá 1–4 en einnig er  hægt  að laga þau að þroska og getu hvers nemanda.  Öll verkefnin hafa verið prófuð í smíðakennslu og í verkferlalýsingunni er oft talað um ýmsa punkta sem reynslan hefur sýnt að þarf að gæta sérstaklega að.
Þó að talað sé um ákveðin smíðaefni í hverju verkefni þá er lítið mál að breyta um efnivið og aðlaga verkefnin að því sem hentar hverjum skóla. Reynt var að hafa efnisval fjölbreytt og nýta ýmsan efnivið úr umhverfinu. Þá er hugað að endurnýtingu og oft er hægt að nota gamlan efnivið til að smíða falleg listaverk.

Ef flettibókinni er hlaðið niður þá birtist hún sem venjulegt pdf-skjal.









 


Tengdar vörur