1. Forsíða
  2. Heimsókn í Kelduskóla Korpu

Heimsókn í Kelduskóla Korpu

Læsisverkefni Menntamálastofnunar barst boð frá Ásdísi og Jóhönnu í Kelduskóla Korpu um að kíkja í heimsókn og fylgjast með skólastarfi. 

Í samkennslu í 1. og 2. bekk er unnið markvisst að góðum grunni í læsi, stærðfræði og félagsfærni og nýttar eru kennsluaðferðir K-Pals, Pals og Læsisfimmu. Nemendur þeirra Ásdísar og Jóhönnu læra einnig markvisst að vinna með námsfélaga og eru þeir að ná mjög góðum árangri í læsi nú í lok 1. og 2. bekkjar.

Við komum líka við hjá Þuríði í 6. bekk og sáum hvernig unnið er með  6+1 vídd ritunar og Bættu lesturinn sem er sænsk lesskilningsaðferð.

Við þökkum kærlega fyrir heimboðið og góðar viðtökur. Okkur finnst alltaf gaman og gagnlegt að fara á vettvang og fylgjast með öflugu og faglegu skólastarfi.

Andrea Anna, Elsa, Guðbjörg, Hafdís og Heiðrún. 

 

          

      

                  

          

          

          

          

          

skrifað 16. MAí. 2018.