1. Forsíða
  2. Sjálfsagðir hlutir | Nýtt námsefni

Sjálfsagðir hlutir | Nýtt námsefni

Nær allt sem við snertum hefur verið hannað á einhvern hátt. Margir hlutir í umhverfi okkar lítum við á sem sjálfsagða í daglegu lífi án þess að gefa því sérstakan gaum. Augnlinsur, tannstönglar, klósett og bréfaklemmur eru dæmi um hluti sem gegna allir á sinn hátt mikilvægu hlutverki og hafa jafnvel sannað gildi sitt sem „klassískir“ á þann hátt að endurnýjun eða endurhönnun virðist óþörf. Tækninýjungar, forvitni og útsjónarsemi einstaklinga hafa oftar en ekki haldist í hendur við að skapa eitthvað nýtt og óvenjulegt úr ýmsum hráefnum.  

Tilgangur með þessari rafbók er að vekja athygli á þeirri hönnun sem er í okkar nánasta umhverfi. Í skólastofunni eru dæmi um hluti sem teljast til hönnunarklassíkur en láta lítið yfir sér. Tillögur að verkefnum og vangaveltum fylgja hverri opnu. Það er í valdi hvers og eins hvort að öll verkefnin eru unnin. Best er að lesa efnið í gegn áður en hafist er handa. 

skrifað 08. SEP. 2020.